BIG MAMA´S BLUES
Textabox
Skoðið þessa frábæru íbúð í hjarta Reykjavíkur sem er til leigu í skemmri tíma fyrir ferðamenn. Íbúðin, sem er í nýlegu húsi í Skuggahverfinu,  er í göngufæri við allt í miðbænum.

Hér er slóðin: http://www.blacktower101.com/

Könnun
Hvernig leggst nýja árið í þig?


10.02.2012 04:22:22 / Sigrún

Föstudagur!

En hann er nú ekkert ægilega skemmtilegur, því við vinnum alltaf til klukkan sex hvern einasta andskotans föstudag............það er nefnilega enginn payday hérna eins og á Jamaica, því allir starfsmenn fá greitt í gegnum ráðningarskrifstofur.

Skrapp í verslun í gær til að kaupa ýmislegt í ísskápinn og svoleiðis, því þó við ætlum ekkert að elda um helgina, þá verðum við að eiga eitthvað til að narta í og bjóða gestunum uppá.

Ætlum að rölta á ströndina annað kvöld og velja einhvern huggulegan stað til að borða á með þeim Sillu og Ken.

Og ég svaf alveg hroðalega illa í nótt. Byrjaði á því að vakna klukkan hálfþrjú og fara á klósettið. Kveikti nú ekki ljós og ætlaði ekkert að lesa, því það dugar ekki, þá get ég ekki sofnað aftur. En þá fékk svona rosalegan krampa í kálfann og hoppaði um á einum fæti smá stund.

Þá fór ég að heyra í lestinni sem yfirleitt truflar mig ekki neitt, en þá vöknuðu greinilega gestirnir sem eru í næstu íbúð og þeir voru bröltandi fram og aftur, skellandi hurðum, sturtandi niður og ræskjandi sig. Það er ofboðslega hljóðbært þarna og var þetta að gera mig brjálaða.

Jæja, best að koma sér að verki.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.02.2012 03:47:26 / Sigrún

Vikan líður svo hratt

nú er kominn fimmtudagur og alveg að koma helgi aftur.

Ég svaf bara óvenju vel í nótt, enda finn ég það líka hvað mér líður miklu betur og er hressari.

Í gær var komið heim í íbúð með heljarmikla efri hillu sem við létum smíða spes í eldhúsið, því það er vægast sagt skringilega útbúið. Engir efri skápar og voða lítið pláss yfirleitt, því þessi íbúð er leigð út í skemmri tíma til ferðamanna sem eru nú ekki mikið að stússast í eldhúsinu. En þetta kemur rosalega vel út, það var Marco vinnufélagi okkar frá Portúgal sem smíðaði þetta, en hann er þúsundþjalasmiður hérna á verkinu.

Við vorum búin að biðja húseigandann um að setja eitthvað upp þarna, en það vildi hann ekki og skaffaði okkur svona venjulega bókahillu sem við höfum verið að notast við. En þessi hilla sem Marco smíðaði er þess eðlis að henni er bara stillt uppá borðið og ekkert borað og ekki neitt, þannig að það sér ekki á neinu. Og það besta er að það eru ljós undir þessum skápum þannig að nú er loksins hægt að sjá til þarna.

Er bara orðið voða fínt þarna hjá okkur. En Gulli er nú alltaf að láta þessa tónlist sem stundum er spiluð þarna niðrá ströndinni, fara voðalega í taugarnar á sér. Ég finn ekki svo mikið fyrir því, en það er stundum þreytandi, en sem betur fer er það nú ekki oft.

Nú stendur til að hann fari að vinna einhverja kvöldvinnu, því það er verið að leggja einhver stór rör undir járnbrautarteina og það verður að ske á kvöldin. Ég er nú að vona að það trufli ekki heimsókn þeirra sæmdarhjóna Sillu og Kens sem eru að koma til okkar á laugardaginn.

Jæja, best að halda áfram.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2012 11:24:52 / Sigrún

Afmælin í dag

eru af mörg og misjöfn. Sjáið hér:

Söngvari hljómsveitarinn Mötley Crue, Vince Neil að nafni, er fæddur þennan dag árið 1961.

Rithöfundurinn Jules Verne, sem skrifaði m.a. "Umhverfis jörðina á 80 dögum" var fæddur á þessum degi árið 1828 og hann lést 77 ára að aldri.

John Grisham sem hefur skrifað margar metsölubækur sem hafa verið kvikmyndaðar, er 57 ára gamall í dag.

Leikarinn og fyrrum barnastjarnan Gary Coleman sem lést nú nýverið, var fæddur árið 1968.

Kvikmyndastjarnan Lana Turner var fædd árið 1921, en hún lést 74 ára gömul.

Leikkonan Brooke Adams sem er gift leikaranum Tony Shalhoub, fæddist þennan dag árið 1949.

Tónskáldið John Williams er áttræður í dag. Hann hefur gert tónlist við margar frægar kvikmyndir eins og "Schindlers List" og "Harry Potter".

Gamanleikarinn vinsæli Jack Lemmon var fæddur þennan dag árið 1925 en hann lést 76 ára gamall.

James Dean sem var aðal sjarmörinn hérna í denn, fæddist árið 1931 en hann lést aðeins 25 ára gamall, en náði samt heimsfrægð.

Leikkonan Mary Steenburgen er 59 ára í dag. Hún er gift leikaranum Ted Danson.

Leikarinn Seth Green, sem ég man helst eftir úr "Austin Powers ",myndunum er fæddur á þessum degi árið 1974.

Og þá er röðin komin að leikaranum og fyrrum sjarmörnum Nick Nolte sem má nú muna sinn fífil fegri. Hann sló eftirminnilega í gegn í þáttunum vinsælu "Rich man, Poor Man" þar sem hann lék á móti Peter Strauss. Núna heyrist helst af honum blindfullum og rugluðum út á strætum og torgum, en vonandi tekur hann sér tak.

Hann er 72 ára í dag.

            




» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2012 03:35:50 / Sigrún

Miðvikudagur

og ég svaf illa að venju. Finnst ég ekki hafa sofið heila nótt almennilega í langan, langan tíma.

Í gær var helgidagur hérna en við vorum nú að vinna. Á leiðinni heim keyrði ég framhjá musterinu og þar var múgur manna bæði fyrir innan og utan og mikill gangur í blómasölunni fyrir framan.

Þeir nota greinilega þessa poyadaga til tilbeiðslu þannig að það mætti varla sála af þessum innfæddu til vinnu í gær.

En Guðlaugur fór heim um eftirmiðdaginn og notaði tímann til að setja fullt af myndum inná bloggið hjá mér, þannig að endilega farið þangað inn og skoðið.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2012 08:40:31 / Sigrún

Afmælin í dag

eru m.a. þessi.

Danska klámstarnan Katja Kean er fædd þennan dag árið 1968. Hún heitir reyndar Sussie La Cour, réttu nafni.

Laura Ingalls Wilder sem flestir ættu nú að þekkja úr þáttunum "Grenjað á Gresjunni" var fædd á þessum degi árið 1867 og hún dó þegar hún var níræð að aldri.

Kántrísöngvarinn Garth Brooks er 51 árs í dag.

Rithöfundurinn Charles Dickens sem skrifaði um "Oliver Twist" var fæddur árið 1812 og hann lést aðeins 58 ára gamall.

Leikarinn Miguel Ferrer sem er sonur leikkonunnar Rosemary Clooney og þar með skyldur George, er fæddur árið 1955.

Eddie Izzard sem er leikari og hefur verið með sína eigin gamanþætti er fæddur árið 1962 í Yemen.

Breski leikarinn Pete Postelthwaite var fæddur árið 1946 og hann lést á síðsta ari. Hann var t.d. með í "The Usual Suspects".

James Spader sem er að gera garðinn frægan í þáttunum "The Office" er fæddur árið 1960.

Gamanleikarinn Chris Rock er fæddur árið 1965.

Aðalafmælisbarn dagsins er hinn nýfráskildi Ashton Kutcher en hann fæddist þennan dag árið 1978. Fyrir utan það að hafa verið giftur Demi Moore, er hann nýtekinn við hlutverki Charlie Sheen í þáttunum "Two and a half Men".







» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2012 01:57:40 / Sigrún

Í dag er svokallaður

poya dagur hér á Sri Lanka og það er yfirleitt almennur frídagur. En fáum við frí... sei sei nei. Núna sitjum við þrjú hérna á kontórnum (allir hvítir) hitt liðið er bara heima hjá sér.

Þetta er að klúðraðst sem framkvæmdastjórinn hafði planlagt, að allir ættu að vinna þessa daga og svo átti að safna þessum poya dögum saman og taka heila viku frí í apríl.

Þessir dagar fylgja fullu tungli og ég sá á leiðinni til vinnu, að Búdda musterið var alveg troðfullt, svona snemma morguns.

En jæja, Silla og Ken ætla að heiðra okkur með nærveru sinni um næstu helgi og ætlum við eitthvað að skrölta með þeim vítt og breytt um Mount Lavinia.

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.02.2012 12:02:52 / Sigrún

Afmælisbarnið

í dag er Robert Nesta Marley, reggígoðsögnin mikla.

Hann var fæddur á þessum degi árið 1945. Faðir hans var hvítur hermaður af breskum ættum en móðirin var svartur unglingur. Hann hafði aldrei neitt samband við föður sinn og þegar faðirinn lést hafði hann aðeins séð soninn í eitt einasta skipti.

Bob fékk krabbamein og lést langt um aldur fram en tónlist hans lifir ennþá og verður bara betri og betri.

Hver þekkir ekki lög eins og No Woman, No Cry, I shot the Sheriff, Rivers of Babylon. One Love og svona má lengi halda áfram.



» 0 hafa sagt sína skoðun

06.02.2012 02:13:23 / Sigrún

Góðri helgi lokið.

Jæja, þá erum við búin að fara til Negombo og heimsækja þar Sillu og Ken sem dvelja þar á litlu hóteli.

Reyndar er þetta ekki í sjálfri Negombi, heldur í liltu þorpi sem heitir Waikkala og er þetta alveg útí sveit bara.

En við höfðum það náðugt, lá í sólinni, synti í lauginni, borðaði góðan mat og spjölluðum við alveg helling við þau. Alveg indælis fólk bæði tvö.

Tíminn leið hratt og við vorum komin heim um þrjúleytið á sunnudeginum, með viðkomu á vinnustað Gulla, því það hafði sprungið eitthvað rör og hann var að skoða aðstæður.

Nú erum við að gæla við að bjóða þeim hjónum að koma og heimsækja okkur um næstu helgi, við erum með nóg pláss og ég held að þau hefðu gott af því að brjóta upp mynstrið hjá sér þarna í sveitinni. Meira um það seinna.

Best að koma sér að verki.

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.02.2012 02:44:31 / Sigrún

Þjóðhátíðardagur Sri Lanka.

Í dag heldur þjóðin hér á Sri Lanka upp á sjálfstæði sitt, því Bretarnir fóru héðan árið 1948, en eyjan var nýlenda þeirra í mörg ár.

Við höfum nú ekki séð mörg teikn um að Bretar hafi yfirleitt verið hérna, fólkið talar ekki ensku nema mjög takmarkað.

En nú erum við að græja okkur í ferðina okkar til Negombo.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2012 17:54:57 / Sigrún

Föstudagur....

og við erum búin að hafa það mjög gott. Núna erum við að gera okkur klár í ferðina miklu til Negombo,

Við æatlum  að hitta Sillu og Ken, sem við þekkjum ekki rassgat í bala,  en eru vinafólk Ínu frænku, og hlökkum við til að hitta þau og sjá eitthvað annað en það sem við erum að sjá alla daga!.....


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2012 08:30:58 / Sigrún

Drykkur dagsins.

Út af ýmsum atburðum sem hafa átt sér stað í dag, langar mig mest til að drepa einhvern og ber drykkur dagsins keim af því.

RUSSIAN ROULETTE

Innihald:

0,5 hluti Kahlua
0,5 hluti Vodka
1,0 hluti Sambuca

Hellið Sambuca í glas og kveikið í því. Hellið hinu áfenginu saman við og leyfið þessu að brenna smástund. Slökkvið eldinn, dælið þessu í ykkur og endið á því að borða appelsínusneið sem hefur verið dreypt í Sambuco.






» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2012 01:36:54 / Sigrún

Föstudagur

og ég er alveg eins og drusla, eins og svo oft áður. Vaknaði klukkan tvö í nótt við það að ég heyrði þegar loftkælingin slökkti á sér. Það hefur greinilega farið rafmagnið í smá stund, en ég nennti ekki á fætur til að kveikja á henni aftur. Þá fór ég að heyra einhverja tónlist úr stofunni og þegar lagið "American Woman" spilaði, fattaði ég að geislaspilarinn hefði farið í gang eftir rafmagnsleysið.

Við vorum nefnilega að spila þann disk á meðan viðgerðarmennirnir voru hjá okkur. Sjónvarpið er búið að vera bilað í þrjá daga og þeir voru í tvo tíma að laga þetta í gærkvöldi.

Jæja, ég dreif mig framúr til að slökkva á tónlistinni og þar með voru örlög mín ráðin. Svaf illa það sem eftir lifði nætur.
Sem betur fer er frí á morgun og meira að segja í tvo heila daga og við erum að fara í okkar margumtalaða ferðalag til Negombo.

Hlakka til að sjá eitthvað annað en Mount Lavinia og þorpin þar í kring.

Jæja, best að koma sér að verki.

» 7 hafa sagt sína skoðun

02.02.2012 09:51:38 / Sigrún

Brjálaður dagur.

Byrjaði á því að fara strax á annan stað til að taka myndir af þeim vinnumönnum sem enn vantar myndir af og þar var ég í tæpa þrjá tíma. Síðan skrapp ég aðeins í búð, þurfti að kaupa straujárn og straubretti og notaði tækifærið og verslaði það sem þarf fyrir helgina.

Reyndar verðum við ekkert heima, við borðum samt eitthvað fínt á föstudagskvöldinu (keypti lambakjöt, það klikkar nú aldrei) og svo höldum við af stað til Negombo á laugardagsmorgunn.

En, það er víst best að halda áfram.

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2012 11:04:08 / Sigrún

Afmæli dagsins

eru til dæmis þessi:

Stefanía Prinsessa af Mónakó er fædd þennan dag árið 1965.

James Ambrose Johnson, eða Rick James eins og hann var betur þekktur, fæddist á þessum degi árið 1948, en hann lést aðeins 56 ára gamall. Hann var með lagið "Super Freak".

Grínistinn og hlunkurinn Ralphie May er fertugur í dag.

Lisa Marie Presley sem er dóttir kóngsins, er fædd þennan dag árið 1968.

Leikstjórinn John Ford sem m.a. gerði myndirnar "The Grapes of Wrath" og "The Searchers" var fæddur árið 1894 og hann lést 79 ára gamall.

Leikarinn Linus Roache sem var t.d. með í "Batman Begins" er 48 ára í dag.

Leikkonan Lauren Conrad sem er t.d. með í þáttunum "The Hills" er fædd þennan dag árið 1986.

Grínistinn Pauly Shore er fæddur árið 1968.

Brandon Lee sem var sonur karatemeistarans Bruce Lee, var fæddur á þessum degi árið 1965, en hann lést aðeins 28 ára gamall.

Leikkonan Sherilyn Fenn er fædd 1965 og var t.d. með í myndinni "Of Mice and Men".

Kvikmyndastjarnan og sjarmörinn Clark Gable var fæddur á þessum degi árið 1901. Hann var aðeins 59 ára þegar hann lést, en hann lifir enn góðu lífi í minningum flestra. Ein frægasta mynd sem hann lék í var án efa "Gone with the Wind" og er setningin sem hann sagði í þeirri mynd hreinlega ódauðleg: "Frankly my dear, I don´t give a damn".







» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2012 02:48:49 / Sigrún

Áttum huggulegt kvöld

í gærkvöldi. Drifum okkur heim eftir vinnu og svo röltum við niðurá ströndina og settumst á staðinn "La Voile Blanche" en sá staður framreiðir dýrindis rétti, ekki bara rice and curry!.

Ég fékk mér auðvitað kokkteil í tilefni dagsins og Guðlaugur fékk sér Lion bjór, en það er innlend framleiðsla.

Svo fengum við okkur auðvitað forrétt og aðalrétt, en ég var nú frekar skúffuð með það sem ég fékk mér. Það var lambaskanki, framreiddur á marokkanskan hátt og borin fram með cous cous. Það var lítið varið í þetta, minnti á jamaicanska curry goat, því það var fullt af beinum í þessu.

Jæja, svo komu þarna tveir vinnufélagar, annar er bossinn á staðnum og við spjölluðum aðeins við þá og vorum svo komin heim um níuleytið og þá var sjónvarpið í ólagi og var það ennþá í morgun.

En nú er best að koma sér að verki.

En já, ætla að þakka öllum fyrir afmæliskveðjurnar, þær voru fjölmargar sem ég fékk inná facebook aðallega.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 306
Heimsóknir
Í dag:  206  Alls: 817198
Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan
Talning
Eftir 53 daga
Fyrstu gestir okkar til Sri Lanka